Drög í þróun · reikniaðgerðirnar fjórar

Reikningsnám

Hér að neðan má finna nokkur verkfæri til að styðja við nám í grunnreikniaðgerðum. Nálgunin byggir á rannsóknum í stærðfræðimenntun og hugmyndinni um hlítarnám (e. mastery learning), þar sem farið er í þyngri færni aðeins þegar grunnurinn sem hún byggir á er traustur.

Hvernig er best að nota þetta?

1StöðumatSetjist niður saman: barnið leysir stöðumat í reikningi og foreldrið fylgist með. Niðurstöðurnar sýna hvað barnið kann vel og hvað best er að æfa.
2Stuttar æfingarVeljið færniþátt sem stöðumatið bendir á og æfið í um 5–10 mínútur, nokkrum sinnum í viku.
3Metið afturEndurtakið stöðumatið eftir nokkrar vikur. Hvert stöðumat gefur niðurstöðukóða sem bera má saman til að sjá breytingar.

Fyrir foreldri og barn

Bakgrunnur og rýni

Reikningur skipar stóran hluta þess stærðfræðináms sem kennt er í grunnskóla (ásamt algebru, tölfræði og líkindafræði, og rúmfræði og mælingum).

Til grundvallar er forkröfukort þar sem færni í reikningi er brotin niður í þætti og greint hvað byggir á hverju. Stöðumatið finnur hvar styrkleikar og veikleikar barnsins liggja á kortinu, og bendir á þá þætti sem hentar að æfa næst.

Dæmin í stöðumatinu koma úr dæmasafni. Hver gerð dæma býr til ný dæmi og reiknar út hvaða röng svör algengar villur gefa, svo rangt svar segir eitthvað um hugsun barnsins.

Í margföldunartöflunni má leiða flestar staðreyndir af öðrum sem barnið kann. Leiðakortið sýnir hve langsótt hver leið er, og hvers vegna æfingarnar mæla með röðinni 10, 2, 5, 9 og 4 sinnum. Þar sjást líka aðrar leiðir, ef önnur röð hentar barninu betur.