← Reikningsnám
Reikningsnám · drög til prófunar

Stöðumat í reikningi

Stutt mat sem sýnir hvað barnið kann vel og hvar best er að byrja. Matið byrjar á grunninum og fer í þyngri dæmi eftir því sem vel gengur. Það fer aldrei í færni sem byggir á einhverju sem barnið réð ekki við.

Áður en þið byrjið

  • Sitjið saman. Matið tekur yfirleitt 15–20 dæmi, um 10–15 mínútur.
  • Engin klukka. Það má hugsa sig um og nota blað og blýant.
  • Það má lesa textann upphátt fyrir barnið. Matið á að mæla reikning, ekki lestur.
  • „Ég veit það ekki“ er gott svar. Það er betra en að giska.
  • Ekki leiðrétta á meðan. Í lokin farið þið saman yfir öll dæmin.
  • Ekkert er vistað. Í lokin færðu stuttan kóða sem má skrifa niður og bera saman við næsta mat.

Þá byrjar matið þar sem síðast var komið, sleppir mestu af því sem var traust og fer niður á við ef eitthvað hefur gleymst.