Hverja staðreynd sem barnið kann ekki má leiða af öðrum sem það kann. Hér er reiknað hve langsótt sú leið er fyrir hverja staðreynd, og hvaða töflur borgar sig að læra fyrst.
Liturinn sýnir hve langt hver staðreynd er frá því sem barnið kann. Smelltu á reit til að sjá leiðirnar. Merktu töflur sem barnið kann og sjáðu kortið breytast.
2, 5 og 10 sinnum eru alltaf taldar kunnar (akkerin).
Á eftir akkerunum er í hverju skrefi valin sú tafla sem lækkar mest kostnað þeirra staðreynda sem annars þyrfti að leiða með langsóttari hætti. Súlan sýnir sparnaðinn.
Þetta er líkan, ekki niðurstaða rannsókna. Hvað er „langsótt“ er að hluta persónulegt og fer eftir því hvað barnið hefur æft. Tölurnar eru til að bera leiðir saman, ekki til að mæla erfiðleika nákvæmlega.