Prófaðu þig áfram — lestu klukkuna og stilltu rétt.
Veldu hvers konar þraut þú vilt efst á síðunni. Vísbendingin er alltaf vinstra megin (eða fyrir ofan á grönnum skjám) og svarið hægra megin (eða fyrir neðan). Önnur klukkan — eða talað form — er gefin, og þú stillir hina svo þær passi saman. Í „texti“-þrautunum er setningin gefin og hin klukkan falin, svo þú stillir út frá orðunum einum. Ýttu á Athuga þegar þú heldur að það sé rétt, eða Sýna svar til að sjá lausnina.
Í „veldu orð“-þrautunum lest þú klukkuna og býrð til setninguna sjálf(ur): veldu fyrst hvernig hún hljóðar og snúðu svo hjólunum til að velja réttu orðin.
Mínútutölur: Veldu hvort tölurnar á ytri hringnum lesist 0–59 réttsælis, eða −29–30 (þar sem mínútur sem vantar í heila klst eru neikvæðar). Þéttleikinn ræður hve margar tölur sjást.
Bogalínur: Blái boginn sýnir hversu langt er gengið yfir síðasta heila klukkutíma (þegar minna en hálftími er liðinn af honum). Rauði boginn sýnir hvað vantar í næsta heila klukkutíma (þegar meira en hálftími er liðinn af þeim síðasta).
Viltu frekar leika þér frjálst? Prófaðu Klukkuna.
Rifjaðu upp hvernig lesið er á klukkuna í Kynningarkaflanum en ef þú vilt aukna áskorun geturðu reynt að ná fimm réttum svörum í röð!