Nýlega lagði menntamálaráðherra til að breytingar yrðu gerðar á einkunnakerfi grunnskóla. Núverandi aðalnámsskrá sem tók gildi árið 2011 byggði á nálgun náms út frá hæfni í stað þekkingar en litlar skorður voru settar á þá hæfni sem nemendur áttu að öðlast. Þeim var bætt við árið 2025 og svipar þeim mjög til áfangaviðmiða fyrri námsskrár.
Helsti munurinn var að í stað þess að skilgreina þekkingu sem nemendur áttu að búa yfir, eru sett fram viðmið um hæfni. Hæfni er víðara hugtak sem nær yfir þekkingu, leikni og viðhorf. Fyrir almenning var áþreifanlega mesti munurinn í formi þess einkunnakerfis sem innleiða átti.
Í stað talnakerfis var lagt fram bókstafakerfi þar sem nemendur fengju einkunnir á skalanum A-D. Fyrir því liggja ákveðin fagleg rök sem vert er að ræða, en þessi breyting hefur virst sumum undarleg og öfugverkandi. Það virðist vera hvatinn að því bráðabirgðaákvæði sem ráðherra lagði fram til breytingar á aðalnámsskrá.
Málið rataði í Samráðsgátt sem mál nr. S-193/2026 og bárust 117 umsagnir á þeim tveimur vikum sem opið var fyrir innsendingu umsagna. Sjálfur var ég mótfallinn og lagði til að fallið yrði frá bráðabirgðaákvæðinu og að bókstafakvarðinn áfram notaður við brautskráningu úr grunnskóla. Byggði ég tillöguna á þrennu:
- Ákvæðið nær ekki markmiðum sínum. Talnakvarðinn gefur ásýnd nákvæmni og samræmis sem matið stendur ekki undir.
- Bókstafakvarðinn hentar betur. Hann fellur að hæfnimiðuðu námsmati og nemendur sem brautskrást í vor hafa verið metnir á honum alla skólagönguna.
- Fyrirvarinn er of skammur. Breytingin kemur á miðju skólaári og eykur þann óstöðugleika sem varað er við í nýjustu PISA-skýrslunni.
Nánari rökstuðning má finna í umsögn minni um málið í Samráðsgátt.