Nýlega sá ég myndbandi deilt á samfélagsmiðli í tilefni af alþjóðlegum degi karla. Í myndbandinu komu fram nokkrar staðhæfingar sem komu mér spánskt fyrir sjónir. Kunningi minn deildi myndbandinu og þótti sem flestum stæði á sama um karlmenn. Ég innti hann eftir því hvers vegna honum þætti svo vera og eftir nokkrar athugasemdir spurði hann mig hvað ég sæi að myndbandinu.
Ég hef upplifað vaxandi áhyggjur karla af stöðu karla almennt og deili hluta þeirra. Því vildi ég ígrunda þetta aðeins áður en ég svaraði, og úr því urðu þessar hugleiðingar sem hér fylgja.
Myndbandið sem um ræðir má sjá hér:
Í myndbandinu er kvenfrelsisbaráttu stillt upp sem einhliða baráttu kvenna. Slagorðið „The Future is Female“ er dregið fram án þess að setja það í nokkurt samhengi og bókstaflegri merkingu þess stillt upp sem einkennandi fyrir kvenfrelsisbaráttuna. Framleiðendur myndbandsins stilla sinni sýn upp sem „meira inngildandi/umlykjandi sýn á framtíðina“ (e. „a more inclusive vision of the future“) sem ýjar að því að framtíðarsýn núverandi kvenfrelsishyggju þjóni ekki hagsmunum allra.
Myndbandið segir að „framtíðin sé allt fólk“ (e. „the future is everyone“) sem hamrar áfram á þeirri röngu framsetningu að núverandi stefna snúi að því að gera framtíðina sérstaklega fyrir konur og rímar við frasann „öll líf skipta máli“ (e. „all lives matter“) sem var stillt upp til hliðar við „líf svartra skipta máli“ (e. „black lives matter“). Það síðara varð að slagorði mannréttindabaráttu þeldökkra árið 2013, eftir að maðurinn sem skaut ungmennið Trayvon Martin var sýknaður, og varð að alheimsfyrirbæri eftir að lögreglumaður myrti George Floyd árið 2020. Mál Floyds og fjölmörg önnur beindu kastljósinu að því hve algengt er að þeldökkt fólk — sér í lagi þeldökkir karlmenn — er drepið af lögreglufólki.
Þetta fór fyrir brjóstið á sumu fólki sem stillti upp „all lives matter“ sem mótvægi. Sumt virðist ekki hafa verið meðvitað um kerfisbundna mismunun sem þeldökkt fólk verður fyrir, en annað virðist hafa talið að markmiðið væri að veita þeldökku fólki meiri réttindi eða eigna því meira virði en hvítu fólki. Myndbandið frá alþjóðlegum degi karla virðist komast að svipaðri niðurstöðu, og mér sýnist með litlu betri rökum.
Í myndbandinu eru settar fram ákveðnar staðhæfingar:
- Karlmenn og drengir eru að dragast aftur úr á mörgum sviðum (e. „Men and boys are falling behind in many areas“)
- Þessi framsetning setur tóninn og ýjar að því að við höfum verið búin að ná jafnrétti en nú séu karlar farnir að dragast aftur úr. Lítið fer fyrir síðustu orðunum — „in many areas“ — sem hylja að þau atriði sem dregin eru fram eru í raun engin meginatriði í réttindum kynjanna. Þau eru talin upp í næstu staðhæfingum.
- Karlmenn lifa að jafnaði fimm árum skemur en konur (e. „Men live around five years less than women“)
- Þetta er ekkert nýtt og er afleiðing líffræðilegra, félagslegra og atferlisþátta. Ekki mismununar. [1] [2] [3] [4]
- Sjálfsvígstíðni karla er um þrisvar sinnum hærri en kvenna (e. „Men’s suicide rates are around three times higher than women’s“)
- Sjálfsvígstíðni hefur staðið nokkuð í stað undanfarin ár en er áhyggjuefni. [5] Hlutfall karla af fólki sem deyr af völdum sjálfsvígs er hins vegar aftur ekki til komið af einhverju misrétti eða tillitsleysi heldur virðist vera frekar vegna menningarlegra þátta. Í gildi er aðgerðaáætlun um að fækka sjálfsvígum á Íslandi og karlar eru meðal áhættuhópa sem sérstaklega er bent á. [6] [7]
- Karlar eru mun oftar myrtir (e. „Men experience much higher rates of homicides than women“)
- Það er vissulega rétt, en aftur er þetta ekki sökum þess að karlar búi ekki við sömu réttindi. Karlmenn beita oftar líkamlegu ofbeldi en konur og á meðan þeir eru 81% fórnarlamba morða bendir sama heimild til að þeir séu um 90% gerendanna. [8] Vandinn er raunverulegur en á rætur að rekja til ofbeldismenningar, ekki réttindaskorts.
- Karlar deyja mun oftar á vinnustað (e. „Men experience much higher rates of workplace deaths“)
- Sem betur fer er dánartíðni á vinnustað lág. Hún er auk þess bundin við ákveðna vinnustaði eða geira sem karlmenn starfa við í mun meiri mæli. Aftur er þetta ekki spurning um misrétti eða að fólki sé sama um karlmenn. Þvert á móti snýr það fremur að störfum karla þegar verið er að gera átak við að fækka dauðsföllum starfsfólks. Slysavarnaskóli sjómanna er ágætt dæmi og ég gef mér að langstærstur hluti löggjafar um öryggi á vinnustað snúi að störfum sem karlar sinna mun frekar en konur.
- Karlar eru mun ólíklegri til að útskrifast úr háskóla (e. „Men are substantially less likely to graduate from university“)
- Þessa athugasemd get ég reyndar tekið undir að nokkru leyti. Það er ekkert nýtt að karlar útskrifist síður úr háskóla en konur. Raunar var það fyrst árið 1984 sem fleiri konur en karlar útskrifuðust úr Háskóla Íslands og þannig hefur það verið æ síðan. Nú eru konur um 70% útskrifaðra af háskólastigi.
- Ég hef stundum velt þessu fyrir mér því fyrirmyndir eru mikilvægar fyrir aðgenig fólks í starfsgreinar og eins getur það verið erfitt að vera í miklum minnihluta. Þar sem hallar á konur, t.d. í sumum deildum verkfræði- og náttúruvísindasviðs, hefur verið markvisst unnið í því að auka hlutdeild kvenna. Í öðrum fögum hallar verulega á karla, sér í lagi á heilbrigðisvísindasviði en fyrir utan stöku átak í hjúkrunarfræðinni hef ég ekki orðið var við mikið gert í því. Þótt þetta sé sannarlega rétt að ræða þykir mér það ekki sérstakt réttindamál karla; hvað þá að karlar þrífist síður í fögum sem konur eru í svona miklum meirihluta í vegna kerfisbundinnar karlfyrirlitningar.
- Neikvæðar afleiðingar slíks ójafnvægis í menntun kæmu að mínu mati helst fram ef karlar fengju ekki sama aðgengi að völdum og konur vegna menntunarmismunar. Jafnvel þótt konur færu nær alfarið með valdataumana í einhverja áratugi er erfitt að sjá hvernig það gæti rýrt réttindastöðu karla að svo miklu leyti að ekki aðeins glati karlar forréttindum sínum heldur verði þeir undirmáls í samfélaginu sökum kynferðis síns.
- Þeir innviðir til jafnréttis sem verja eiga kynin að jöfnu eru ekkert á hverfanda hveli. Innviðir jafnréttis, sem eiga að verja fólk óháð kyni, eru ekki á hverfanda hveli. Völd karla geta vissulega minnkað, segjum ef þeir verða kerfisbundið í minnihluta í stjórnum fyrirtækja (sem þeir eru alls ekki), í sveitarstjórnum (sem þeir eru ekki) eða á Alþingi (sem þeir eru ekki heldur).
- Breytt aðgengi karla að völdum sökum breytinga á samfélagsgerðinni vekur hins vegar spurningar um hvernig við útdeilum valdi í samfélaginu. Sér í lagi hvort okkur nægi að jafn stór hluti karla og kvenna fari með völdin, eða hvort markmiðið sé að tryggja að fólk hafi sem jafnast aðgengi að völdum óháð störfum eða bakgrunni.
- … á meðan drengir standa sig verr í skóla víða um heim (e. „… while boys underperform girls educationally across much of the world“)
- Hér hef ég flóknar tilfinningar til viðfangsefnisins. Það er hárrétt að drengir hafa dregist aftur úr stúlkum en fyrir því virðast vera ýmsar ástæður og kynjavinkillinn er bara hluti af stærra umhverfi fjölda þátta. Áhugaverðar rannsóknir á orðræðu í kringum menntun drengja benda til þess að einföldunin á málefninu niður í drengjavandann sé hluti af krísuframsetningu samfélagsumræðu og byggi ekki á faglegum greiningum fagfólks.
Aðstandendur alþjóðadags karla kalla eftir tvennu: að dagurinn verði formlega viðurkenndur af Sameinuðu þjóðunum og að ríkisstjórnir og SÞ standi við stofngildi sín. Sérstaklega er vitnað í stofnsáttmála SÞ sem kveður á um jafnrétti karla og kvenna, og Mannréttindayfirlýsingu SÞ sem segir að „[s]érhver manneskja er borin frjáls og jöfn öðrum að virðingu og réttindum.“
Þetta hamrar enn og aftur á því að karlar séu ekki að njóta jafnra réttinda á við konur. Myndbandið sýnir hins vegar ekkert fram á það. Ég skil vel að karlar upplifi það sem óréttlæti þegar málefni sem þeir tengja við fá minni athygli en málefni kvenna, ekki síst þeir sem upplifa misrétti sem þeir tengja kyni sínu. Við það bætist að margir horfa með ákveðinni fortíðarþrá til liðinna tíma sem virðast hafa verið einfaldari. Hlutverk þeirra hafi verið skýrara og hefðbundið framlag þeirra til heimilisins sem aðalfyrirvinna tryggari.
Staða karla er enginn dans á rósum í ört breyttri menningu, en rökin fyrir því að hún sé til komin vegna þess að karlar njóti ekki jafnréttis á við konur eru í besta falli veik. Og í versta falli afvegaleiðing frá raunverulegu kynjamisrétti sem enn er að finna í viðhorfum samfélagsins til stöðu og hlutverka kvenna.
References
- Pearson, E. (2025, October 1). We finally know why men don't live as long as women, say scientists. BBC Science Focus Magazine. https://www.sciencefocus.com/news/men-lifespan-monogamy-children ↩
- Shmerling, R. H. (2020, June 22). Why men often die earlier than women. Harvard Health Publishing. https://www.harvardhealth.org/blog/why-men-often-die-earlier-than-women-201602199137 ↩
- Hossin, M. Z. (2021). The male disadvantage in life expectancy: Can we close the gender gap? International Health, 13(5), 482–484. https://doi.org/10.1093/inthealth/ihaa106 ↩
- Dattani, S., & Rodés-Guirao, L. (2023, November 27). Why do women live longer than men? Our World in Data. Retrieved November 20, 2026, from https://ourworldindata.org/why-do-women-live-longer-than-men ↩
- Embætti landlæknis. (n.d.). Sjálfsvíg – tölur [Suicide – figures]. Ísland.is. Retrieved November 20, 2026, from https://island.is/tolfraedi-um-sjalfsvig ↩
- Embætti landlæknis. (n.d.). Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum [Action plan to reduce suicides]. Ísland.is. Retrieved November 20, 2026, from https://island.is/forvarnir-sjalfsviga/adgerdaaaetlun-til-ad-faekka-sjalfsvigum ↩
- Heilbrigðisráðuneytið. (2025). Aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi 2025–2030 [Action plan to reduce suicides in Iceland 2025–2030]. https://assets.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3p1hquCvYXqFXSrA7590fO/1c2fc1fe868645d77a8b51d9156794d4/A%C3%83_ger%C3%83_a%C3%83_%C3%83_tlun_til_a%C3%83__f%C3%83_kka_sj%C3%83_lfsv%C3%83_gum_%C3%83__%C3%83_slandi_2025-2030.pdf ↩
- United Nations Office on Drugs and Crime. (2023). Global study on homicide 2023. United Nations. https://www.unodc.org/documents/data-and-analysis/gsh/2023/Global_study_on_homicide_2023_web.pdf ↩