Hugtakið vitsmunaleg auðmýkt er eitt þessara hugtaka sem hefur hjálpað mér að kjarna ákveðið gildi
What to do when your beliefs are challenged
Viðtal við Tenelle Porter sem rannsakar vitsmunalega auðmýkt. Áhugaverðir punkar: Porter hefur sérstaklega rannsakað unglinga. Kemur á daginn að unglingar eru ekkert sérstaklega vitsmunalega treg (?, e. intellectually rigid). Samkvæmt einni rannsókn kom á daginn að unglingar með meiri vitsmunalega auðmýkt áttu auðveldara með að læra.
Eitt sem kom Porter á óvart var að fólk sem er sérstaklega meðvitað um það sem þau vita ekki getur verið smeykara við að viðurkenna að þau vita ekki. Það er sumsé ekki endilega bein fylgni milli meðvitundar og tjáningar um vitsmunalega auðmýkt. Annað er að það er bæði vandamál að vera of vitsmunalega treg og of efasemdafull um sjálf sig (analysis paralysis).
Porter nefnir líka samtal milli manneskju og rannsakanda vitsmunalegrar auðmýktar. Manneskjan sagði að henni þætti bara svo vont að hafa rangt fyrir sér og þótti leitt að það þyrfti að vera svona vont að uppgötva að hún hefði haft rangt fyrir sér. Rannsakandinn spurði hvað hún væri að meina; það væri alveg frábært að hafa haft rangt fyrir sér! Þannig hafi hún lært eitthvað nýtt og það sé svo gott. Porter veltir því fyrir sér hvort til sé fólk sem hafi getað endurrammað þetta þannig inn svo þau bregðist núna þannig við.
Þáttastjórnandinn, Chris Duffy, er uppistandari og nefnir hvernig það venjist að „bomba“ á sviði. Það sé ennþá sárt, en með æfingunni sé það farið að vera meira eins og bara upplýsingar um hvað virki og hvað ekki.
Porter nefnir tvær aðferðir sem fólk getur reynt til að draga fram vitsmunalega auðmýkt þegar á reynir. Ein leið er að taka sig út úr aðstæðunum og ímynda sér sig vera að horfa til baka eftir einhver ár til að sjá smæð atburðarins í stóra samhenginu. Hin er að minna sig á þau gildi vitsmunalegrar auðmýktar og mikilvægi þess að vera ekki vitsmunalega treg.
Aðferð sem hún nefnir að megi nota til að móta viðhorf barna er að bæði sýna skýrt vitsmunalega auðmýkt í verki, og að hrósa í hástert þegar börnin sýna vitsmunalega auðmýkt, t.d. með því að segjast ekki vita eða segjast hafa haft rangt fyrir sér.
(Birt 10. mars 2025. Hlustun þann 7. ágúst 2026.)