Föst í umferð?
Það vorum við sonur minn í gær. Hann sækir tónlistartíma í Engjateiginn og svo bar við að við færðum hann aðeins til þannig að skaraðist greinilega við umferðarteppuna. Ég bjóst við að þvögunni yrði lokið þegar klukkan nálgaðist fimm en svo reyndist aldeilis ekki. Af Högunum í Vesturbæ Reykjavíkur vorum við í klukkutíma að fara ekki nema fimm kílómetra leið.
Við hefðum í raun eins geta labbað.
En hvað er til ráða? Fleiri akreinar? Bætt ljósastýring? Nei, hvorki akreinar né ljósastýring breyta því að það er bara of mikið af bílum til að vegakerfið anni þeim. Að bæta við akrein er rándýr aðgerð og eykur flæði einkabíla í besta falli um tvöfalt. Sem hljómar vel nema hvað þegar við áttum okkur á því að til að losna við umferðarteppuna þyrftum við líklega að fjórfalda það … og þá munum við samt vera stopp á öllum umferðarljósum.
Eftir að hafa barmað okkur með tónlistarkennaranum yfir því hversu galið þetta er fengum við blessun á því að fara hjólandi með hljóðfærið svo lengi sem ekki væri of kalt úti. Piltinum mínum þykir tölvuert betra að hjóla en sitja klesstur í aftursætið á bíl svo það er ágætur valkostur.
Utan annatíma tekur það vanalega um 12-15 mínútur að aka þessa leið en á hjóli eru það um 20-25. Eina verulega brekkan upp vestasta hluta Hverfisgötunnar. Almennilegir hjólastígar eftir Suðurgötunni væru til mikilla bóta, en við yrðum a.m.k. tvöfalt fljótari en að aka.
Nema hvað það er ekki girnilegt að dröslast með strengjahljóðfæri í úrhelli eða skítakulda. Þá væri gott að geta tekið strætó. Nema hvað stræót situr eins og er fastur í sömu þvögu og einkabílarnir. Með sérrými fyrir almenningsamgöngur kæmist strætó framhjá helstu umferðarþvögum og væri einnig ekki nema 20 mínútur á leiðinni. Við strætó er einnig sá kostur að það er þægilegra að spjalla þegar setið er hlið við hlið og eins má nýta tímann til að lesa eða vinna.